Hér eru fáein dæmi um hugbúnað sem ég hef þróað.
IceNLP
IceNLP er safn hugbúnaðartóla til að greina og vinna með íslenskan texta. Þar á meðal er markari (sem greinir orðflokka og önnur málfræðileg atriði), hlutaþáttari (sem greinir setningaliði) og lemmari (sem finnur orðabókarmynd beygðra orða). Ég þróaði lemmararann, sem nefnist Lemmald, og held áfram að vinna að þessu verkefni ásamt Hrafni Loftssyni (sem þróaði markarann og hlutaþáttarann).
Niðurhala IceNLP frá Sourceforge
(frjáls og opinn hugbúnaður, LGPL, óháð stýrikerfi)
Sniðald
Forrit sem tekur .pdf og .doc skjöl og umbreytir yfir á .txt snið. MS Word þarf að vera sett upp á tölvunni til að forritið virki fyrir .doc skjöl (ekki mjög gömul útgáfa). Einnig þarf MS .NET Framework að vera sett upp á tölvunni.
Niðuhala (8,2 MB)
(ókeypis en ekki opið)
VolumeTouch
Setur upp flýtilykla o.fl. til að vinna með hljóðstyrk í Windows XP. Örugglega mest notaða forrit sem ég hef skrifað. Notendur eru mörg þúsund um allan heim. Nauðsynlegt er að hafa .NET Framework sett upp á tölvunni.
Vefsíða VolumeTouch (hægt að niðurhala án endurgjalds)
(ókeypis en ekki opið)
Samhengisháð ritvilluleit
Verkefnið snýst um að búa til íslenskan tungumálapakka fyrir LanguageTool, sem er almennt verkfæri fyrir vélrænan prófarkalestur. Nýjasta gerð LT styður þegar ákveðna grunnvirkni fyrir íslensku. Ég mun halda áfram að vinna að þessu verki.
Heimasíða LanguageTool
(frjáls og opinn hugbúnaður, LGPL, óháð stýrikerfi)
Hljóðritill
Viðmót til að slá inn hljóðritunartákn án þess að nauðsynlegt sé að hafa sérstakar leturgerðir settar upp á tölvunni. Forritið býr til mynd af hljóðrituðum streng sem hægt er að afrita og líma inn í hvaða ritvinnslukerfi sem er.
[Ekki aðgengilegt eins og er]
Hljóðritari (Hljóðald + Atkveðald)
Forrit sem tekur inn íslenskan texta með venjulegri stafsetningu, hljóðritar hann og skiptir í atkvæði. Merkir einnig kjarna atkvæða samkvæmt lýsingu Kristjáns Árnasonar.
[Ekki aðgengilegt eins og er]
Mörkuð íslensk málheild
Hef tekið þátt í þessu verkefni sem er á vegum Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Meðal verkefna var íslenskt vefviðmót fyrir Xaira-málheild.
Upplýsingar á vef SÁ



