Nýverið skrifaði ég lítinn pistil í afmælisrit Kristínar Bjarnadóttur um kynjað mál. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem maður spreytir sig á kynjafræði sem er auðvitað voða skemmtilegt viðfangsefni. Það var ekki staðist mátið að bjóða pdf af pistlinu til niðurhals. Afmælisrit eru auðvitað afmælisrit og áhugasamir lesendur ættu að passa sig á því að taka ekki spekina of hátíðlega -- þó að hófstilltur alvarleiki sé náttúrulega ekki algjörlega alvörulaus. Pistillinn er a.m.k. um svona meðvituð víxl líffræðilegs og málfræðilegs kyns, aðallega í útlensku, en slíkt á það til að skolast á skjön við samkvæmni og upphaflega ætlan. Það getur verið býsna flókið að eltast við og auðga göfugar meiningar -- þó að auðvitað sé eina vitið að halda áfram að reyna.
Bjórinn í gær var fínn. Það var gaman að hressa sig svolítið innan um miðbæinn og hina málþenkjandi nördana. Það var gert svolítið sötr á Ísl. bar. og arkað eitthvað smávegis um götur. Það er fínt. Ætla svo að reyna að hafa þessa helgi rólega og afslappaða. Það verður kannski gluggað aðeins í einhverjar bækur, fræðilegar eða skáldlegar, en ég ætla að láta fjölmiðlaþrugl og æsifólk að mestu fram hjá mér fara. Dramafíknin í þjóðfélagslegu athygliskeppninni er svo þreytuleg að fátt er orðið þaðan að draga nema eigin andvörp og höfuðhristinga. Þá er skemmtilegara að verða vitni að ægilegum átökum málvísindamanna sem stinga hver annan brjáluðum spjótum með hrokadónalegri fræðiútlensku þannig að kenningar andstæðinganna bíða þess naumast bætur -- þar til í næstu grein þegar fleygar eru reknir í öll skilningarvit þeirrar kenningar sem átti fyrstu atlöguna. Engin andvörp þar.



