Nú lítur út fyrir að það sé verið að vera að útskrifast sem BA eftir nokkurra ára brölt um ganga Háskóla Íslands. Það er að vísu nokkuð liðið síðan lokaritgerð var skilað og því um líkt ... og verður ekki annað sagt en að MA-námið sé komið af stað nú þegar ... en það er samt ágætt að fá svona eins og eitt BA á sig. Það er vísu aðeins öðruvísi en til stóð í upphafi því að það sem einu sinni hét íslenska heitir núna almenn málvísindi - íslenskan fær þó að fljóta með sem aukagrein.
Það verður fróðlegt að sjá hvað MA-námið kemur til með að heita. Það gæti orðið almenn málvísindi, íslensk málfræði eða tungutækni, ojæja, það kemur í ljós. En sem sé, í vænanlegri febrúarútskrift losnar HÍ við mig af BA-nema-skrá sinni. Er ekki bara málið að skella sér í svolítinn skemmtibjór með góðum skólafélögum á morgun til að halda upp á það? Ég held það bara.



