Anton Karl Ingason

  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size

Ávarp án sagnorða frá Kraptakvöldi Mímis (2006)

Print
Gott kvöld kæru vinir, og til hamingju með daginn, hinn stórmagnaða og skemmtilega atburð, Kraptakvöld Mímis – og til hamingju ég sjálfur með mína fyrstu mætingu á slíkt kvöld, enda undirritaður ekkert nema fávís nýnemi – eða einhvers staðar þar um bil.

Fyrst ein stutt saga um baksögu þessa ávarps Antons sem nýnemafulltrúa Mímis:

Einhvern tíma fyrir ekki svo löngu. Halla formaður búin með einn eða tvo bjóra á einhverri ónefndri skemmtun vetrarins (Októberfest eða eitthvað álíka) og alsaklaus ég í nágrenninu búinn með svona þrjá eða fjóra. Ég og bjórinn minn þarna í algjöru grunleysi en merkileg tilkynning á næsta leiti: „Anton. Ávarp nýnemafulltrúa á Kraptakvöldi, þitt mál að þessu sinni.“
„Gott og vel. Ávarp. Ekkert mál. Um hvað?“
„Bara eitthvað skemmtilegt, til dæmis upphaf skólans, fólkið á fyrsta ári, uppljóstrun skandala úr vísindaferðum, haustferðum og öðru, eða bara eitthvað annað. Kannski eitthvað fyndið en aðallega bara áhugavert – en á skemmtilegan hátt.“
„Já – ekkert mál – ávarp frá mér. Varla svo flókið.“
„Tja. Humm. Sko.“
„Einhverjar meiri upplýsingar? Einhvers konar catch?“
„Jú. Eiginlega. Eitt skilyrði til viðbótar.“
„Nú? Hvað?“
„Engin sagnorð í ræðunni.“

Nokkuð magnað skilyrði, en sem afleiðing af áhugamáli undirritaðs um sagnalausan texta, svo sem sagnalaust blogg og fleira skemmtilegt, ekki alveg eins erfitt og skilningur sumra á fyrirbærinu sagnaleysi í íslensku. Í öllu falli áhugaverð tilraun fyrir Anton sagnleysingja – tilraun til íslenskufræðilegs trúleysis, vélabragða og svika – en þó auðvitað allt í góðu.

En ekki meira droll við forsögu þessa litla pistils – áfram að upphafi skólans, náminu okkar, uppljóstrunum skandala og öðru skemmtilegu.

Byrjunin fyrst. Af hverju ég og íslenska? ... og af hverju íslenska yfir höfuð?

Í fyrsta lagi málfræðin – stöku sinnum súr en þó yfirleitt áhugaverð. Ekkert leiðinleg til dæmis kunnáttan um sagnamálið íslensku og nauðsyn sagnliðar í hverri setningu. Mikilvægt stöff og engin ástæða til efasemda. Ekki nema kannski hjá einhverjum uppreisnargjörnum vitleysingum og viðlíka villutrúarmönnum.
En í það heila: Málfræði, einn plús í kladda íslenskunnar þar.

Í öðru lagi íslenskar bókmenntir. Gott og vel, smá játning. Frestun þar til á næstu önn því miður hlutskipti bókmennta hjá mér þessa önnina. Málsbætur mínar litlar – nema þó kannski. Jú! Dagsönn fullyrðing um mikla tilhlökkun gagnvart vorönn. Íslenskar bókmenntir, annar plús þar.

Og svo í þriðja lagi aðalmálið, þriðja megingrein íslenskra fræða, almenn skemmtun og úthugsuð næringarfræði. Næringarfræði með tilliti til allra fæðuflokkanna, fæðuflokka eins og Budweiser, Gull, Víking, Thule og Carlsberg – og jafnvel finnskir fæðuflokkar eins og Lepin kulta. Alveg hreint fyrirmyndar næringarfræði að mínu mati og greinilega að ykkar mati líka. Stór plús fyrir það.

Einkunn íslenskra fræða því einfaldlega þrír stórir plúsar og enginn mínus. Ekki slæmt það, eiginlega bara tilefni til iðkunar á næringarfræði.

Skál fyrir íslensku!

Jæja. Aldeilis prýðileg næring þetta. En hvað með skandala og skemmtanalæti á fyrsta hluta skólaársins?

Jú. Slík upptalning næst á dagskrá.

Atburður 1:
Vísindaferð í Landsbankann: Stóra spurningin í aðdragandanum auðvitað í því tilviki, staðsetning Landsbankans. Fyrsta tilkynning Mímis: Bankastræti. En neinei, engin ferð þangað. Næsta tilkynning Mímis: Austurstræti. En neinei, engin ferð þangað heldur. Á endanum prýðisskemmtun með hrikalega mörgum sálfræðingum – í Hafnarstræti. Mímir smávegis áttavilltur þá viku en útkoman snilld.

Aburður 2:
Þrískipt haustferð um Suðurland: Fyrsti þáttur með afríkudýrum, fótbolta, humarsúpu, söng og gleði. Annar hluti ritskoðaður. Þriðji hluti. Tja. Minnisleysi.

Aburður 3:
Vísindaferð í Landsvirkun: Áliðnaður aldrei betri en þetta kvöld, nefnilega sem bjórdósir handa okkur. Maður kvöldsins þó augljóslega ekki fyrirlesarinn heldur nýr góðvinur íslenskunema, enginn annar en Kim Celticfrömuður.

Atburður 4:
Ölgerð og Októberfest: Reynslulærdómur fyrir marga um ógeðslegt bragð humla. Seinni hluti þessa atburðar á blaðinu mínu með ritskoðað merki yfir öllum textanum, jæja, hvað um það.

Atburður 5:
Rannsóknaræfing: Bara eitt orð um það. VÁBARASTA! Mergjaður atburður alveg hreint með rosalegu bítlabíti og viðlíka stuði.

Í millitíðinni svo nokkrar gáfuferðir á gáfustaði eins og Þjóðminjasafn og Þjóðmenningarhús og mannvit Mímis í framhaldinu allt að því óendanlegt.

En aðalmálið hjá Mími og félögum, sem fyrr, auðvitað dagurinn í dag, nefnilega atburður 6: Kraptakvöld. Frekara röfl og stórundarlegt sagnorðaleysi frá mér því algjör óþarfi.

Takk fyrir mig, en samt einu sinni að lokum.

Skál fyrir Kraptakvöldi – og skál fyrir hressandi næringarfræði!


Last Updated on Sunday, 13 September 2009 20:03